Hæ, þú!
Litlu krúttin! :)
Kærustur
14.02.2008 17:34:13 / Addi

Ný síða

Ætla að blogga hér framvegis:

http://addisteini.wordpress.com/

» 0 hafa sagt sína skoðun

02.02.2008 16:32:28 / Addi

Vetur konungur

Helvítis snjór!

Ég er orðinn mjög þreyttur á því að reyna að moka gangstíginn að húsinu mínu, eða reyna að grafa upp bílinn minn í hvert sinn sem ég þarf að skutlast eitthvert. Eða að reyna að keyra göturnar sem eru margar hverjar ekki ruddar. Nú í dag eru gröfur búnar að vera á ferðinni framhjá gatnamótum Eyrarvegs og Ránargötu, og þeir moka við gatnamótin, en fara ekki inn í götuna mína þar sem snjórinn nær vel upp á kálfa, eins og þeir séu að ögra manni...

Og manni finnst næstum alveg tilgangslaust að reyna að moka eitthvað sjálfur, því ég get svo svarið að ég heyri Kára hlæja að aumkunarverðum tilraunum mínum til að hindra aðgerðir hans og sendir mér 10 skóflur af snjó fyrir hverja eina sem ég tek.

Labbaði síðan í vinnuna í gærkvöldi, og var klæddur í Securitas fötin, þykku úlpuna mína utan yfir það, snjóbuxur og gönguskó. Ég óð hálfa leiðina með snjó upp fyrir ökkla, og einu sinni gerðist það virkilega að ég var með svo mikinn snjó í andlitinu að ég var farinn að labba á götunni, sem ég hélt að væri gangstéttin!

Og síðan fór eitthvað í pirrurnar á mér þegar "krakkar" komu skjögrandi blindfullir inn í 10-11 á strigaskóm eða spariskóm í fínu jökkunum sínum, og virtist alveg sama þó að skórnir hefðu þyngst um helming vegna alls snjósins sem hafði farið ofan í þá. Ég sver það, að í alla nótt, þá sá ég 3 manneskjur sem voru klæddar miðað við aðstæður.


» 6 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 20:01:49 / Addi

Spaugstofan

Er að horfa á Ólínu Þorvarðardóttur ræða/rífast við Karl Ágúst Úlfsson um Spaugstofuþáttinn síðastliðinn laugardag og það hvernig þeir fóru með "greyið" hann Ólaf F.

Þetta virkar eitthvað rosalega vitlaust hjá henni. En því miður virðist koma fram reglulega fólk sem getur rifist yfir einhverjum tittlingaskít, eða einhverju sem er ekki til staðar nema að maður snúi út úr hlutunum. Skemmst er að minnast þegar frægur bæklingur kom út frá Smáralindinni á síðasta ári.

En þarna segir hún að það sé gengið yfir strikið hjá þeim að gera grín að veikindum Ólafs. En Karl segir, og þetta er eins og ég tók því frá byrjun þegar ég horfði á þáttinn, að þeir eru ekki að gera grín að veikindum Ólafs, heldur að umræðunni sem kom upp í fjölmiðlum um veikindi hans, og hvað sú umræða væri asnaleg og tilgangslaus/-lítil. En ekki gefst Ólína upp heldur heldur áfram að segja hvað henni finnst þetta ósiðlegt og að hún hafi skilið þetta eins og hún gerði og haldi að margir aðrir hafi gert það.

Annars finnst mér fyndið að þarna situr Karl og segist sjá eftir því ef einhver hafi orðið sár yfir þessu gríni og meiningin hafi ekki verið að vera með persónulegar árásir um heilsu eins né neins. En Ólína heldur bara áfram og fer síðan að tala um "aumingja" Björn Inga, sem fékk líka sinn skammt af gríni í þættinum (eins og við var að búast eftir þetta fíaskó í borginni) og sem m.a.s hætti í pólitík. Náði nú ekki hvort henni datt virkilega í hug að hún gæti skellt þeirri skuld á Spaugstofuna, en ef svo er þá er hún miklu heimskari en hún lítur út fyrir að vera.

Shit... vona að hún sjái þetta ekki...

Allavega... ég náði gríninu þeirra. Þetta snérist ekki um veikindi Ólafs, heldur UMRÆÐUNA um veikindi Ólafs.


» 0 hafa sagt sína skoðun

28.01.2008 02:05:34 / Addi

Bara svona smá flipp ;)

Var bara pínu að leika mér í photoshop ;)
Vil taka fram að ég var bara að leika mér og get gert betur en þetta.

p.s.
Ég vona að Guðna og Ævari sé sama að ég notaði nöfn þeirra (og mynd Ævars) fyrir þetta grín :)


» 2 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 21:49:52 / Addi

Vælukjói...?

Ólafur F. eitthvað súr:

http://visir.is/article/20080127/FRETTIR01/80127047

Greyið... Allir eru svo vondir við hann. Við hverju bjóst hann? Að allir myndu bara taka honum opnum örmum? Að allir myndu klappa honum á bakið og segja "Gott hjá þér, Óli!".

Þú vildir verða borgarstjóri... Deal with it!


» 0 hafa sagt sína skoðun

27.01.2008 20:20:55 / Addi

Núverandi þyngd:

106

Jamm, ég veit, hef þyngst aftur upp í sömu þyngd og þegar ég byrjaði. En svona til að afsaka mig þá hef ég heyrt að þegar maður lyftir mikið þá þyngist maður fyrst áður en maður léttist. Það er allavega sú afsökun sem ég ætla að halda mig við í bili. ;)


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.01.2008 23:17:24 / Addi

Heath Ledger látinn

Þetta eru leiðinlegar fréttir:

http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/01/22/heath_ledger_latinn/

Góður leikari sem átti mikið, mikið eftir. Gott að hann náði þó að klára The Dark Knight (Batman), sem ég hlakka mikið til að sjá.


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 23:02:10 / Addi

Líkamsrækt

Þetta er reyndar stolin hugmynd frá Ævari Þór (var reyndar að skoða myndasögur til að finna eitthvað handa honum). Fannst þetta bara lýsa baráttu minni við þyngdina mjög vel :$


» 0 hafa sagt sína skoðun

18.01.2008 19:33:12 / Addi

Núverandi þyngd:

105,3

Mun framvegis uppfæra þetta á hverjum föstudegi.


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 14:17:17 / Addi

Í fréttum:

- Er s.s. í ræktinni. Byrjaði samt bara fyrir 4 dögum, þannig að við sjáum til hvernig gengur.

- Er vonandi að fara að vinna hjá þessu fyrirtæki. Er búinn að vera í sambandi við þá, en en vandamálið er að ég er með Windows Vista, en forritið sem þeir nota passar bara fyrir Windows 2000 eða Windows XP. Er að bíða eftir að búið verði að breyta því fyrir Vista.

- Fékk bréf frá Fasteignamati Ríkisins og fasteignamatið á íbúðinni minni hefur hækkað um tæp 400þús, þannig að vúhú!

- EM í handbolta byrjar í dag með leik Svía og Íslendinga. Hlakka til. Þeim verður sko rústað! (Nú eru eflaust einhverjir að pæla hvora ég á við... ah, mine to know and yours to find out) ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 00:20:11 / Addi

Núverandi þyngd:

106

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 15:25:48 / Addi

Skólinn byrjaður

Jæja...

Kom aftur til Akureyrar 2.jan og fór síðan á næturvakt helgina 4.-6.jan. Sá þar m.a. konu sem var einu sinni karl... það var truflandi. Það var eins og breytingin hefði verið gerð í einhverri afsláttarverslun. Er Bónus farið að bjóða upp á svona lagað...?

Síðan byrjaði skólinn 10. jan og hófst með lotu sem stóð 10.-12.jan. Þessa daga áttum við m.a. að teikna (mikið ), spila og hlusta á tónlist og hoppa og skoppa og leika strauma í fossi. Já, ég veit ekki...
Tónlistin var skemmtilegust. Fékk að spila blús á píanóið. Áttum síðan að teikna sjálfsmynd af okkur en ég gerði bara skrípamynd af kalli og setti skeggið mitt á hann. Kennarinn fílaði það.

Síðan byrjar skólinn "í alvöru" á þrjðudaginn. Minnir að það sé sálfræði fyrst.

 Jæja, ætla að fara og horfa á Ísland - Tékkland í handbolta. ÁFRAM ÍSLAND!


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.12.2007 00:05:31 / Addi

The Blues Brothers

Jamm, í dag gerðist svolítið skemmtilegt. Ég og Ævar bróðir spiluðum í fyrsta skiptið opinberlega saman á balli. ;) Það var nú reyndar bara jólabarnaball, en telst samt gilt.

Stefnum á áramótaballið á Patró á næsta ári (enda eru bara alltaf diskótek hérna á gamlárskvöld, sem er ekki gaman).


» 3 hafa sagt sína skoðun

23.12.2007 17:03:41 / Addi

Kominn heim á Patró

Fékk síðustu einkunnina mína (eðlisfræði) á fimmtudaginn. Endaði með 7. Fékk 6,8 á prófinu sjálfu, sem er svo sem ágætt. Endaði með 7.9 í meðaleinkunn.

Er annars bara í jólafríi heima á Patró og fer síðan aftur á Akureyri 3. janúar, þar sem ég þarf að vinna helgina 4.-6.janúar. Annars byrjar skólinn ekki aftur fyrr en 10. janúar.


» 0 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 10:41:17 / Addi

Prófin búin!

Yes! Gott að þessi próftíð er búin!

Síðasta prófið var eðlisvísindi í gær, og ég held að það verði ekkert glæsilegt, en ætti að duga.

Er búinn að fá einkunn fyrir stærðfræðina og aðferðarfræðina. Fékk 8,5 í stærðfræðinni og 8 í aðferðarfræðinni. Meðaleinkunnin er s.s. 8,125 eins og er, en eðlisfræðin mun pottþétt lækka hana.

 Jæja... er að fara að vinna núna eftir tæpan klukkutíma og verð frá 11:30-20:00 að öryggisvarðast í Rúmfatalagernum, sem er pínu skondið, gefið það að í fyrra á sama tíma var ég þarna að aðstoða fólk að velja jólaseríur. Nú á ég bara að tækla alla þá sem reyna að stela og vera geðveikt ógnvekjandi.

Planið fyrir næstu viku er eftirfarandi:
Vinna í dag og á morgun 11:30-20:00.
Sunnudag 13:00-18:00.
Mánudag-föstudag 14:00-21:00.

Síðan fer ég heim á Patró á laugardaginn.


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 13